Hulduherinn
21.11.2010 20:05:18 / herinn

Ættarmót 5-7 ágúst 2010

Ættarmót á Laugum í Sælingsdal 5-7. ágúst 2011.

Áætlaður fjöldi gesta er ca 200 manns.

Tveggja manna herbergi m/handlaug kr. 14.200,- á nótt.

Eins manns herbergi m/handlaug kr. 10.500,- á nótt.

Tveggja manna herbergi m/baði kr. 24.000,- á nótt.

Eins manns herbergi m/baði kr. 18.300,- á nótt

Innifalið er morgunverðarhlaðborð.


Veittur verður 10 prósent afsláttur af ofangreindu verði fyrir þá sem gista í eina nótt, en 15 prósent afsláttur fyrir þá sem gista í tvær nætur. Þessi afsláttur er háður því að ein sameiginleg kvöldmáltíð sé keypt, að minnsta kosti.


Þeir sem gista í tveggja manna herbergi geta fengið dýnu fyrir börn með sér í herbergi án endurgjalds. Pláss er fyrir 1-2 dýnur á hverju herbergi.

Uppbúið aukarúm/aukadýna kostar kr. 2.900,-

Greiða þarf fyrir morgunverð barna eftir aldri.


Svefnpokapláss í skólastofu kostar kr. 2.200,- á mann á nótt. Ekki er veittur afsláttur af gistingu í svefnpokaplássi.


Tjaldstæði er við hótelið og kostar nóttin kr. 850,- á mann. Frítt er fyrir börn yngri er 12 ára. Rafmagn á tjaldstæði kostar kr. 400,- sólahringurinn.


Sameiginlegur kvöldverður á laugardagskvöldið kostar kr. 4.800,- á mann. Matseðill kvöldsins samanstendur af heitum og köldum réttum á hlaðborði. Innifalið í verðinu eru afnot af sal. Lágmarksfjöldi í ofangreint hlaðborð eru 40 fullorðnir. Á Edduhótelunum er fullt vínveitingaleyfi.


Morgunverður kostar kr. 1.400,- á mann.

Börn 0 til 5 ára fá frían mat, en börn 6 til 12 ára greiða hálft gjald.


Aðrir afslættir gilda ekki með tilboði þessu.

_______________________________________________________________________

Eftirfarandi hefur verið tekið frá fyrir ættarmótið:

Föstudagur 5. ágúst:

7 tveggja manna herbergi með handlaug

Laugardagur 6. ágúst:

17 tveggja manna herbergi með handlaug

2 eins manns herbergi með handlaug


Til að staðfesta pöntun þarf að greiða kr. 50.000 í staðfestingargjald eða leggja fram kreditkortanúmer í síðasta lagi 22. nóv 2010. Staðfestingargjald þetta er óafturkræft sé ættarmótið í heild afpantað með minna en tveggja mánaða fyrirvara.

Þátttökutilkynning og herbergjabókun berist þeim sem er í forsvari fyrir ættarmótið.


Eigi síðar en einum mánuði fyrir ættarmótið þarf að liggja fyrir herbergjalisti með fjölda pantaðra herbergja ásamt nafnalista þeirra sem gista eiga í herbergjunum. Nauðsynlegt er að aldur barna sé tilgreindur með pöntun. Með pöntun á herbergi þarf að fylgja kreditkortanúmer sem staðfesting á pöntun. Herbergjapöntun er bindandi.

Áætlaður fjöldi matargesta þarf að liggja fyrir með viku fyrirvara.


Sundlaug er við hótelið.


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.08.2010 21:45:33 / herinn

Patro 21+22/8

:lol:
:lol: Jæja, nú styttist í  það. Stemmingin var æðisleg síðast með Indverjunum. Hlakka til að fara vestur.
Gunna

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2010 14:21:52 / herinn

Hnífurinn góði

Sæl öll og gleðilegt sumar. Ég var að leggja lokahönd á frágang tjaldvagnsins til kaupanda, þegar ég fann hnífinn góða. Einhver hafði sett hann í geymsluvasa , en sem góðri húsmóður datt mér ekkert annað í hug en hnífaparaskúffan og gáði ekki annarsstaðar.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2010 17:28:24 / herinn

Gleðilegt ár

Sæl öll sömul. Mig langar að auglýsa eftir hnífi sem ég týndi í Fossatúni síðasta sumar.
Hnífurinn er beittur með svörtu skafti og mjóu blaði í brúnu leðurhulstri.
Ef einhver kannast við lýsinguna þá gæti ég nálgast hann við tækifæri.
Gunna

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2009 20:38:28 / Steini

GAMAN SAMAN

Nú styttist í að við hittumst í Steinsnar. (Fossatúni)
Þeir sem ætla að mæta eru beðnir um að melda sig hingað inn svo hægt sé að gera sér grein fyrir fjöldanum og hvað við þurfum stórt svæði undir okkur.

» 12 hafa sagt sína skoðun

03.06.2009 22:34:51 / herinn

Í tilefni dagsins !

Í danaveldi dvelur nú
dajlig það ég nú vona.
Yfir þrítugt hefur þrjú
þessi glaða kona.

Til hamingju með daginn, kveðja Jói.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2009 21:30:59 / Steini

Breyting

8)Vegna frétta um giftingu innan Hulduhersins helgina 3.-5. júlí, hefur útilegunni verið frestað um viku.
Stefnum semsagt á helgina 10. til 12. júlí:d
Endilega setjið athugasemdir hér inn um tíma og staðsetningu ef óskað er eftir breytingum.

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.05.2009 01:35:31 / Steini

Gaman saman

:p
Það hefur verið ákveðið að helgina 3-5. júlí muni Hulduherinn hittast í Steinsnar í Borgarfirði til skrafs og  ráðagerðar og .......................:d.
Möguleiki á innigistingu fyrir þá sem það vilja er fyrir hendi í Steinsnar. Pöntun í síma 433 5800, Annars er lengi hægt að troða í þau rými sem finnast hjá meðlimum hersins.
Nú er um að gera að hysja  upp um sig og mæta á staðinn til að hitta gamla og nýja hermann Hulduhersins.

Samstarfshópur um "gamansaman"

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.04.2009 23:37:55 / Steini

Valdís er búin að eiga

Valdís og Tryggvi eignuðust strák í kvöld.
19 marka og 54 centimetra  :d

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2009 17:14:05 / Steini

Sumarsammenkomst

HALLÓÓÓÓÓÓÓÓ,       HALLÓÓÓÓÓÓÓÓ

Er einhver þarna????? :lol::d:haha:
Á ekkert að hittast í útilegu í sumar?

Nei, nei. Var bara svona að tékka á liðinu. Ekkert að reka á eftir eða neitt svoleiðis. Bara svona.

Steini

» 10 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 19:24:17 / herinn

ÞORRABLÓT

Þorrablót V-Barðstrendinga verður haldið 31.janúar í sal Ferðafélagsins í Mörkinni í Rvík.
Miðapantanir Baldvin Agnarsson 892 9291, Þórunn Erla Stefánsdóttir (hans Jóhanns Sam. ) 616 7782, Sigríður Sveinsdóttir 861 5764.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 13:32:05 / dagrun

Fjölskyldumótsnefndin

Til að svara fyrirspurninni þá eru Þórhanna, Irma og Jóhann í nefndinni.  Þau ákváðu að betra væri að hafa það á 3 ára fresti (en ekki 2 eins og fyrsta nefndin vildi) og ætti það því að vera í sumar.  Nú er kominn tími til að skipuleggja gott fólk! 

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 11:11:15 / herinn

Jólasveinarnir íDymmuborgum

Þann 13. des. sl. fórum við með barnabörnin af Hauganesi að líta á jólasveinana í dymmuborgum þar komu ljósmyndari og blaðamaður frá dönsku blaði og tóku nokkrar myndir af af þeim Rúnari Smára, Dagnýu  og Sindra, ef þið danmerkurdveljandi ættingjar rekist á þessar myndir væri gaman að vita af því og jafnvel að fá eintak af blaðinu, kær kveðja og bestu jóla og nýársóskir Jói.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2008 17:43:54 / herinn

fjölskyldumót

Jæja, var ekki á dagskrá að halda fjölskyldumót næsta sumar? Hverjir voru í nefndinni, mig rámar í að Þórhanna hafi verið í henni en man ekki meira. Nú erum við nokkur frændsystkinin sem búum erlendis (ég flutti með fjölskylduna mína til London í september) og það væri ágætt ef nefndin myndi ákveða sig með dagsetningu fljótlega, ef það stendur til að halda sig við næsta sumar.

Annars vil ég óska öllum í Hulduher gleðilegra jóla. Við fjölskyldan (Gunna, Leifur, börn, makar og barnabörn) ætlum að vera á Hjaltlandi um jólin með vinafjölskyldu okkar. Ég hlakka mikið til.

Kær kveðja, Signý


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 10:52:04 / herinn

fjársöfnun

halló kæru ættingjar eins og þið kannski vitið þá er Júlía Ósk að æfa handbolta með FH. Núna eru þær að stefna á að fara til Svíþjóðar næsta sumar og eru þess vegna að selja ýmsar vörur þessa dagana t.d. wc-rúllur, eldhúspappír, þvottaefni, bílavörur og fleira. ef þið hafið áhuga endilega hafið samband við mig eða látið vita hér á síðunni í síðasta lagi á þriðjudag og ég hef samband. kveðja Soffía.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 36007
Dagsetning
28. janúar 2012
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 176 dögum
Stóra ættarmótið
Klukkan
Könnun
Mætir þú á hið frábæra ættarmót í ágúst?
Auðvitað mæti ég
8 atkvæði

Já, því ég er ómissandi
4 atkvæði

Kannski
3 atkvæði

Nei, ætla að vera heima í fýlu
1 atkvæði

Nei, verð í útlöndum
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 17